24. apríl 2026

Norðurál hefur hafið endurræsingu þeirra 340 kerja duttu út þann 21. október sl.

Framleiðsla var stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls í október síðasta árs en var það í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins sem varð þriðjudaginn 21. október. Bilunin olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju.

Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði.

Á meðan beðið er eftir nýjum spennum var gert við þá eldri sem styttir verulega þann tíma sem framleiðsla Norðurál er skert. Slíkt skiptir ekki bara máli fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess, heldur fyrir samfélagið allt en Norðurál er eitt af stærstu útflutningsfyrirtækjum landsins.

Það tekur sinn tíma að koma 340 kerjum í virkni en að jafnaði eru 2 ker gangsett á vakt.