Sjálfbærniverkefninu var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Verkefnið hefur staðið yfir frá árinu 2007 og niðurstöður nú teknar saman í lokaskýrslu sem byggir á safngögnum frá 2007 til 2024.
Niðurstöður eru um margt áhugaverðar og eru sannarlega lærdómur um hvernig náttúran bregst við breytingum eins og til að mynda virkjun stórra jökuláa eins og Jöklu (Jökulsá á Dal/Jökulsá á Brú).
Skýrslan er í heild sinni er á vefsíðu verkefnisins en helstu niðurstöður eru reifaðar í myndbandi.