Tvö nýsköpunarverkefni hafa hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins. Styrkirnir eru veittir í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en verkefnin snúa annars vegar að kolefnisgeymslu og greiningu á losun og hins vegar að kolefnislausri álframleiðslu. Styrkirnir nema samtals 360 milljónum króna, en bæði verkefnin hlutu hæstu einkunn fagráðs Rannís.
Samtök álframleiðenda óska styrkþegum til hamingju, þau eru vel að styrknum komin. En nánar má lesa um verkefnið á vef stjórnarráðsins.