13. maí 2026

Uppskeruhátíðir stóriðjuskólanna

Með hækkandi sól og hlýnandi veðri er það ekki bara lóan sem syngur sitt dirrindí, stoltir útskrifaðir nemendur úr stóriðjuskólum álveranna fagna líka námslokum.

Íslensku álverin eru nefnilega ekki bara að framleiða ál, þau reka öll stóriðjuskóla og í vor útskrifuðu samtals þau 46 nemendur.

Í stóriðjuskólum álveranna fær starfsfólk tækifæri til að bæta við sig þekkingu og í kjölfarið hækka í launum, en um leið verður það hæfara og axlað aukna ábyrgð í starfi.  Þannig verður til aukin verðmætasköpun og samkeppnisfærni en ekki síður verða álverin eftirsóknarverðari vinnustaðir.

Með námi eykst öryggisvitund og ánægja starfsfólks í starfi.