- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Nýja framleiðslulínan felst í tveimur vöruflokkum, ECOLUM™ og ECODURA™ og er vel til þess fallin að mæta kröfum viðskiptavina um vörur úr áli sem falla að sjálfbærnisjónarmiðum.
Framleiðslulínan byggir á langtíma stefnu Alcoa um sjálfbæra þróun.
SUSTANA vörulínan var frumsýnd á álsýningunni í Dusseldorf þann 29. nóvember 2016. Hér er um nýja álvörulínu að ræða en hún er framleidd með lítilli kolefnalosun og úr endurunnu efni. Vörulínan er vel til þess fallin að mæta kröfum viðskiptavina um vörur úr áli sem falla að sjálfbærnisjónarmiðum. Hún er hönnuð til þess að hjálpa fyrirtækjum að minnka kolefnisfótspor aðfangakeðju þeirra og ná þeim sjálfbærnimarkmiðum sem þau hafa sett sér.
SUSTANA framleiðslulínan felst í tveimur aðalvöruflokkum:
ECOLUM frá Fjarðaáli
Fjarðaál lék stórt hlutverk á álsýningunni þar sem Fjarðaál framleiðir mikið af vörum sem heyra undir vöruflokkinn ECOLUM™. „Mörg fyrirtæki sem framleiða neytendavörur úr áli hafa gert sjálfbærni að meginmarkmiði sínu og þessvegna leitast þau við að nota einungis ál með lítið kolefnisfótspor og tilskilin vottorð," segir Timothy D. Reyes, framkvæmdastjóri málmsteypu Alcoa Corporation. „Með því að markaðssetja þessar umhverfisvænu SUSTANA vörur, sem hafa mikilvæga kosti varðandi sjálfbærni í samanburði við algengustu vörur sem eru í boði í áliðnaðinum, vill Alcoa sýna í verki þá stefnu fyrirtækisins að hjálpa viðskiptavinum sínum að draga úr áhrifum reksturs þeirra á umhverfið. Þessar vörur sem við setjum núna á heimsmarkað byggja á langvarandi skuldbindingu Alcoa við sjálfbæra þróun, sem meðal annarst felst í umtalsverðri minnkun á okkar eigin kolefnisfótspori.“