- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Nýverið lenti Einarsson veiðihjólið í 2. sæti í virtri bandarískri úttekt. 800 eintök af Einarsson veiðihjólum voru framleidd hér á landi í fyrra. Hjólin eru smíðuð af rennismiðnum Steingrími Einarssyni í litlu húsnæði niðri við höfn á Ísafirði. Í hjólin er notað sérblandað ál sem keypt er frá Alcoa í Bandaríkjunum. Um þennan merkilega frumkvöðul er fjallað í frétt í Viðskiptablaðinu og segir þar meðal annars:
Sérstaða Einarsson-hjólanna er fólgin í efninu sem notað er við smíðina en einnig hönnuninni og þá sérstaklega hönnuninni á bremsunni sem er einstæð. Í hjólin er notað sérblandað ál sem keypt er frá Alcoa í Bandaríkjunum. „Við höfum fengið hjálp við þróun hjólanna frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og einnig fengum við styrk frá Rannís sem hefur hjálpað okkur mikið.“
Einarsson hefur nýlega gert samning um sölu hjólanna í Japan.Einnig eru í gangi viðræður við fjóra aðila í Bandaríkjunum og Kanada. Því til viðbótar eru hjólin seld á Norðurlöndunum, í Bretlandi, á Írlandi, Spáni, í Sviss, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og auðvitað hér heima.“