- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Á Nýsköpunarmóti Álklasans í gær voru veittar hvatningarviðurkenningar og styrkir til nemendaverkefna sem þóttu standa fram úr á sviði áltengdrar nýsköpunar, en það hefur tíðkast frá árinu 2018. Áherslur á snjallvæðingu og grænar lausnir voru áberandi í þeim verkefnum sem tilnefnd voru og kallast það vel á við áherslu iðnaðarins um þessar mundir. Nemendurnir sem fengu viðurkenningu í ár voru:
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, Háskólanum í Reykjavík:
Hönnun á stafrænum tvíbura fyrir málmflæði hjá Alcoa Fjarðaáli með áherslu á búnað og gögn.
Kamaljeet Singh, Háskólanum í Reykjavík:
Grunnrannsóknir á rafgreiningu með eðalskautum.
Jóhanna Lóa Ólafsdóttir og Ragnar Loki Ragnarsson, Háskóla Íslands:
Nýr umhverfisvænn kragasalli
Lingxue Guan, Háskóla Íslands:
Að samþætta öfluga osmósu með föngun CO2 fyrir raforkuframleiðslu og kolefnisbindingu.
Stuðningsaðilar hvatningarviðurkenninganna voru að þessu sinni, Alcoa Fjarðaál, Efla, Íslandsstofa, Landsbankinn, Mannvit, Norðurál, , Rio Tinto á Íslandi, Samál, Samtök iðnaðarins og Tæknisetur.
Fyrri verðlaunahafar:
2021:
Aðalsteinn Bragason, Ingvar Birgir Jónsson og Sverrir Ólafsson, Stóriðjuskóla Isal:
Straummælingar skauta framkvæmdar úr skautskiptitækjum.
Áslaug Guðmundsdóttir, Háskóla Íslands:
Straummælingar forskauta í kerskálum álvera.
Berglind Höskuldsdóttir, Háskólanum í Reykjavík:
Innleiðing á rauntímaefnagreiningu í kerskála álvers.
Diljá Heba Petersen, KTH og Háskóla Íslands:
Í átt að hringrásarhagkerfi: Meðhöndlun úrgangs í íslenskum orkufrekum iðnaði.
Sarah Elizabeth Di Bendetto, Háskólanum í Reykjavík:
Hermun á loftstreymi og varmaflutningi undir yfirbyggingu rafgreiningarkers fyrir álframleiðslu.
2019
Caroline Mary Medion, Háskólanum í Reykjavík:
Bætt straumnýtni hjá lághita rafgreiningu á áli með lóðréttum eðalrafskautum.
Diljá Heba Petersen, Háskóla Íslands:
Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu.
Eymar Andri Birgisson, Háskólanum í Reykjavík:
Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón.
Hinrik Már Rögnvaldsson, Háskóla Íslands:
Flokkunarmódel planaðrar áltöku.
2018
Kevin Dillman, Háskóla Íslands:
LCA greining á íslenskri álframleiðslu.
Leó Blær Haraldsson, Háskólanum í Reykjavík:
Hitaveita með varmaendurvinnslu frá Fjarðaál, fýsileikagreining.
Matthías Hjartarson, Háskólanum í Reykjavík:
Uppbygging á tauganeti fyrir greiningu á raflausnarleifum á dökku yfirborði í raunumhverfi.
Regína Þórðardóttir, Háskóla Íslands:
Kortlagning á framleiðsluúrgangi sem fellur til innan áliðnaðar.