Nýsköpunarmót Álklasans verður haldið í Hátíðarsal Háskóla Íslands miðvikudaginn 30. mars kl. 14-16. Dagskrá er fjölbreytt að vanda þar sem gefin verður innsýn í spennandi þróunarverkefni hjá iðnaðinum, sprotafyrirtækjum og rannsóknarsamfélaginu. Hér er hægt að skrá sig.
Dagskrá
- Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verfræði- og náttúruvísindasviðs
- Ágúst Valfells, deildarforseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík
- Snjallar lausnir í álframleiðslu - María Kristmundsdóttir, framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar og upplýsingatækni hjá Alcoa
- Steinunn Dögg Steinsen, yfirmaður umhverfis- og öryggismála álvera hjá Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls.
- Áliðnaðurinn í átt til kolefnishlutleysis, Bjarni Már Gylfason, leiðtogi samfélagsmála og samskipta hjá Isal
Örerindi
- Aðstaða til tæknirannsókna fyrir orkuiðnað, Guðbjörg Óskarsdóttir, klasastjóri Álklasans og framkvæmdastjóri Tækniseturs
- Endurvinnsla kerbrota - Sunna Ólafsdóttir Wallevik, Gerosion og Ísstál
- Loftslagsvæn kolefnislaus álframleiðsla - Jón Hjaltalín Magnússon, Arctus Aluminium
- Nýr umhverfisvænn kragasalli og arftaki koltjörubiks - Kristján Friðrik Alexandersson, Álvit
- Nýsköpunarmolar í HR - Guðrún Sævarsdóttir, dósent Háskólanum í Reykjavík
- Evrópusamstarf í áltengdum þróunarverkefnum - Guðmundur Gunnarsson, Tæknisetur
- Afhending nemendaviðurkenninga og kynning á nemendaverkefnum