- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls sat sinn síðasta stjórnarfund þann 21. mars sl. en hann var ráðinn til samtakanna árið 2013. Pétur hverfur nú til annarra starfa, en landsmenn munu innan tíðar sjá hann á öðrum vettvangi þar hann er nú að vinna að ljóðaþáttum fyrir RUV ásamt Evu Marínu Jónsdóttur.
Það er næsta víst að stuðlum og höfuðstöfum fækkar nú á skrifstofu Samáls en sem kunnugt er þykir Pétur einstaklega hagmæltur og sér í lagi ef tekið til tillit til ungs aldurs. Samál þakkar Pétri farsælt starf í þágu álframleiðenda og óskar honum alls hins besta á nýjum lendum.