- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórkaupendum að draga þurfi úr afhendingu á raforku frá næstu mánaðamótum ef ástand vatnsbúskaparins batnar ekki þeim mun meira. Nánar er fjallað um málið á Mbl.is.
Í fréttinni segir ennfremur að innrennsli í miðlunarlón, ekki síst á Austurlandi, sé minna en það hefur verið í meira en áratug vegna lítillar snjó- og jökulbráðnunar í sumar.
Nú vanti 30% upp á að miðlunarlón Landsvirkjunar séu full. Útlit sé fyrir að enn muni vanta 20% upp á fyllingu um næstu mánaðamót þegar öll lón eiga að vera full og byrjað að nota vatnið til raforkuframleiðslu. Landsvirkjun reikni með að draga úr orkusölu um 3,5% á komandi vetri. Það getur þó breyst eftir ástandi vatnsbúskaparins.