- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
1. grein
Samtök álframleiðenda á Íslandi (SAMÁL) eru samtök íslenskra álframleiðenda og eru málsvari álframleiðenda gagnvart almenningi, stjórnvöldum, fjölmiðlum, viðskiptasamfélaginu, menntasamfélaginu og öðrum hagsmunaaðilum.
2. grein
Aðilar að Samtökum álframleiðenda geta orðið allir íslenskir álframleiðendur enda fullnægi þeir skilyrðum samþykkta þessara. Stofnfélagar SAMÁLS eru þrjú álframleiðslufyrirtæki, Alcan á Íslandi, Alcoa á Íslandi og Norðurál.
Samtök álframleiðenda eru aðilar að Samtökum iðnaðarins og félagsmenn SAMÁLS skulu allir vera aðilar að Samtökum iðnaðarins.
Ákveði félagsmaður að segja sig úr samtökunum skal tilkynning þess efnis hafa borist skrifstofu samtakanna eigi síðar en 30. júní. Tekur úrsögn þá gildi í upphafi næsta almanaksárs.
Samtök álframleiðenda geta með ákvörðun stjórnar tekið þátt í alþjóðlegum samtökum áliðnaðarins til að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og fylgjast með nýjungum og framþróun í greininni.
3. grein
Samtök álframleiðenda munu sinna framfaramálum og sameiginlegum verkefnum áliðnaðarins og finna á þeim lausn heildinni til heilla.
Samtök álframleiðenda munu hins vegar ekki koma fram fyrir hönd álframleiðenda við samninga um viðskiptaskilmála sem álframleiðendur njóta hér á landi.
Samtök álframleiðenda munu gæta þess sérstaklega í störfum sínum að fjalla ekki um nein málefni sem gætu með nokkrum hætti farið á svig við samkeppislög eða önnur lög eða reglur.
4. grein
Helstu verkefni Samtaka álframleiðenda, eru:
5. grein
Framkvæmdastjóri sinnir daglegum rekstri Samtaka álframleiðenda.
Framkvæmdastjóri sinnir störfum sínum í samráði við stjórn samtakanna eða aðra þá starfsmenn sem stjórn þeirra tilnefnir honum til ráðgjafar og samstarfs. Stjórn SAMÁLS ræður framkvæmdastjóra til starfa. Skrifstofa Samtaka álframleiðenda hefur aðsetur hjá Samtökum iðnaðarins í Reykjavík.
6. grein
Stjórn Samtaka álframleiðenda skipa þrír stjórnarmenn og þrír varamenn sem skiptast jafnt á milli álfyrirtækjanna þriggja. Aðalmenn í stjórn skulu skipaðir forstjórum félaganna þriggja nema annað sé ákveðið. Stjórnarformennska færist milli álfyrirtækjanna árlega. Ákvarðanir stjórnar skulu teknar samhljóða af stofnfélögum. Fjölgi aðildarfyrirtækjum skal endurskoða skipan stjórnar.
7. grein
Aðalfund skal halda fyrir maílok ár hvert. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum Samtaka álframleiðenda. Til aðalfundar skal boða skriflega með bréfi eða tölvupósti, með minnst 7 daga fyrirvara.
8. grein
Kostnaður við rekstur SAMÁLS skiptist þannig milli álframleiðenda: Helmingur kostnaðar skiptist jafnt milli fyrirtækjanna. Hinn helmingurinn skiptist milli þeirra í hlutfalli við álframleiðslu þeirra í tonnum talið.
9. grein
Ákvörðun um slit félags verður tekin aðalfundi eða almennum félagsfundi sem boðað hefur verið til með minnst 7 daga fyrirvara. Ákvörðun um slit skal samþykkt með minnst 2/3 hlutum atkvæða. Fundur sem tekur ákvörðun um slit félagsins skal jafnframt taka ákvörðun um ráðstöfun eigna eða greiðslu skulda í samræmi við ákvæði laga um slit félagasamtaka.
Þannig samþykkt á stofnfundi þann 7. júlí 2010.