- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Tor Arne Berg, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, kveðst ánægður með að nýr kjarasamningur hafi í dag verið undirritaður milli Fjarðaáls og AFLs Starfsgreinafélags og Rafiðnaðarsambands Íslands. Hann segir samninginn fela í sér mikla kjarabót fyrir starfsfólk álversins, auk þess sem hann bæti jafnvægi milli vinnu og einkalífs, sem sé mikilvægt fyrir fjölbreyttan vinnustað. Hér má lesa umfjöllun um málið í Austurfrétt.
Kjarasamningarnir hafa verið lausir frá 1. mars í fyrra en samningurinn gildir afturvirkt frá þeim degi til þriggja ára. Helstu breytingarnar í honum er stytting vinnutíma og hærri laun, hvort tveggja í samræmi við lífskjarasamninginn og aðra samninga í íslenskum álverum.
Samningurinn var undirritaður í húsakynnum Fjarðaáls eftir hádegi í dag. Ríkissáttasemjari hefur leitt viðræðurnar eftir áramót en þær hófust síðasta vor.
Tor Arne segir að þótt samningaferlið hafi verið langt, meðal annars út af Covid-19 faraldrinum, þá hafi samskipti við verkalýðsfélagin góð og aðkoma ríkissáttasemjara hjálpað til við að ná niðurstöðu.
Samningurinn var sendur starfsfólki í gær og hann verður kynntur nánar áður en greidd verða um hann atkvæði. Því ferli lýkur í mánuðinum.