- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi, segist í viðtali á Mbl.is að vonum óánægður með niðurstöðu Félagsdóms um að verkfall megi hefjast í álverinu í Straumsvík á miðnætti.
„Ég hygg að atvinnulífið standi frammi fyrir ansi fjölbreyttri flóru nýstárlegra verkfalla. Það er spurning hvort það verður ekki næsta skref að starfsmenn verslana setji á sölubann. Mæti til vinnu og sinni öllum störfum og ætlist til að fá greitt fyrir það en selji enga vörur. Ég öfunda ekki atvinnulífið af því,“ segir Ólafur Teitur.