- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Þetta ár verður að óbreyttu það besta í sögu áliðnaðar á Íslandi enda ekki útlit fyrir annað en að álverð verði áfram sögulega hátt.
Þetta segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls og stjórnarformaður Samtaka álframleiðenda, Samáls, í samtali við Morgunblaðið og bendir á samkeppnisforskot íslenskra álvera. Ólíkt álverum í Evrópu sem glími við afleiðingar orkukreppu njóti álverin á Íslandi þess að hafa samið til langs tíma um kaup á raforku.
Gangi spá Einars eftir mun það birtast í afkomu Landsvirkjunar og Orkuveitunnar og svigrúmi þeirra til að greiða eigendum sínum arð. Gæti ávinningur þjóðarbúsins hlaupið á tugum milljarða þegar allt er talið.
Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum álframleiðenda greiddu álverin 123 milljarða í innlendan kostnað í fyrra. Þá hafi útflutningstekjur af áli numið 298 milljörðum í fyrra sem var 90 milljörðum meira en árið áður. Landsbankinn hefur bent á að útflutningsverðmæti stóriðju, sjávarafurða og ferðaþjónustu var alls 242 milljarðar á fyrsta fjórðungi sem sé met. Einar spáir því að álverð haldist í 2.500 til 3.000 Bandaríkjadölum tonnið í ár en meðalverðið var 1.730 dalir tonnið árið 2020.