Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu

Ein af þremur megin stoðum í tekjuöflun Íslands er álframleiðsla. Hinar tvær eru fiskveiðar og ferðamennska. Á árinu 2023 skiluðu íslensku álverin þjóðinni umtalsverðum tekjum. Þau vörðu 57,3 milljörðum í kaup á vörum og þjónustu. Þau greiddu 9,4 milljarða í opinber gjöld. Þau greiddu 25,3 milljarða í laun og launatengd gjöld. Um 2000 einstaklingar vinna hjá álverunum á Íslandi, ýmist sem launþegar eða verktakar. Þetta eru tölur sem skipta íslenskt hagkerfi verulegu máli.

En stærsti hluti rekstrar íslensku álveranna fer til kaupa á raforku. Áætlað keyptu álverin raforku af íslenskum orkuframleiðendum fyrir 68,3 milljarða á síðasta ári. Stærsti söluaðili raforku er Landsvirkjun.

Stórnotendur raforku mynda grunninn að íslenska raforkukerfinu og álverin kaupa um ¾ hluta seldrar raforku á Íslandi. Langtímasamningar við stórnotendur hafa gert Íslendingum kleift að byggja upp stórar og hagkvæmar virkjanir sem og öflugt flutningskerfi til að flytja orkuna landshluta á milli. Einmitt þess vegna búa Íslendingar við einstakt orkuöruggi og greiða lágt verð fyrir raforkuna. Ef orkufyrirtæki eins og Landsvirkjun hefðu ekki þessa traustu kaupendur, gætu þau ekki boðið almenningi þau góðu kjör og afhendingaröryggi sem raunin er í dag.

Sveiflur í orkunotkun almennings og fyrirtækja annarra en stórnotenda skapa ákveðna óvissu í viðskiptalíkani orkufyrirtækjanna. Slík óvissa ætti samkvæmt viðskiptalíkani að skila sér í hærra verði til kaupenda. En þá er gott að eiga bakland í álverunum, sem semja til lengri tíma um kaup á miklu magni. Og ef illa árar í orkuframleiðslu eru samningarnir við álverin að hluta til skerðanlegir. Almennir notendur (fyrir utan fiskimjölsbræðslur og fjarvarmaveitur sem eru með varaafl) geta ekki tekið á sig skerðingar líkt og álverin gera.

Ef samningar við álverin yrðu endurskoðaðir og sú raforka sem þau kaupa í dag yrði seld annað, myndi það veikja stoðir orkufyrirtækjanna eins og Landsvirkjunar sem yrði að verðleggja orkuna hærra á grundvelli þeirrar óvissu sem felst í almennri eftirspurn eftir raforku og þeirrar óvissu sem á við ef framleiðslugeta orkufyrirtækjanna minnkar. Ef kjölfestunni er rutt í burtu er næsta víst að skútan leggst á hliðina.

 

Guðríður Eldey Arnardóttir

Greinin birtist á visi.is 4. júlí 2024

Sjá einnig