- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Í ársbyrjun var þeim áfanga náð í álveri Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð að heildarframleiðslumagn afurða fyrirtækisins náði tveimur millljónum tonna. Fyrsta kerið var ræst í aprílmánuði 2007, fyrir tæpum 7 árum síðan.
Í álverinu eru framleidd daglega um 950 tonn af áli í 336 kerum, en nánar má lesa um framleiðsluferlið á alcoa.is. Reiknað er með að heildarframleiðsla Alcoa Fjarðaáls verði um 350 þúsund tonn á þessu ári. Samkvæmt starfsleyfi hefur fyrirtækið heimild til þess að framleiða allt að 360.000 tonnum af áli á ári.
Nánar er fjallað um þennan áfanga á heimasíðu Alcoa og Mbl.is.