- Samál Samtök álframleiðenda
- Borgartúni 35
- IS-105 Reykjavík
- Iceland
- Framkvæmdastjóri, Guðríður Eldey Arnardóttir er með síma 8200766
- samal@samal.is
Mikla orku þarf til að framleiða ál og við framleiðsluna losnar óhjákvæmilega koltvísýringur og aðrar gróðurhúsalofttegundir. Heildarlosun á hvert framleitt tonn er mjög breytileg eftir uppruna raforkunnar og gerð og aldri álvers. Þannig getur heildarlosun á framleitt tonn numið allt að 17 tonnum, ef notast er við raforku frá kolaiðjuveri. Á Íslandi er þetta hlutfall hins vegar aðeins 1,64 tonn af CO2 á hvert áltonn. Þetta hlutfallið er talið vera nálægt tæknilegu lágmarki en losun vegna efnahvarfs kolefnis í rafskautum við súrefni í súrálinu nemur um 1,5 tonnum á hvert framleitt áltonn.
Við ákvörðun Evrópusambandsins um losunarheimildir fyrir álver sem tóku gildi frá árinu 2013 er tekið mið af frammistöðu þeirra 10% álvera í Evrópu sem best standa sig í þessum efnum og eru íslensku álverin öll í þeim hópi.
Útstreymi gróðurhúsalofttegunda af rekstri álvera í heiminum skiptist þannig að 72% er vegna raforkuframleiðslunnar, 11% vegna bruna kolarafskauta og 17% vegna útstreymis flúorkolefna (PFC) við álframleiðsluna. Af þessu má sjá að langmest mengun verður vegna orkuframleiðslunnar en slíkri mengun er ekki fyrir að fara hér á landi.
Útstreymi frá álframleiðslu hér á landi er því tvíþætt:
Á árunum 1990-2009 minnkaði útblástur gróðurhúsaloftegunda frá áliðnaði hér á landi um 75% á hvert framleitt tonn.
Losun svonefndra PFC gróðurhúsalofttegunda er 6 sinnum minni hér á landi en almennt tíðkast. Losun PFC nam um 100 kg á hvert framleitt tonn á Íslandi á árinu 2009 en að meðaltali losar álframleiðsla í heiminum um 590 kílóum af PFC lofttegundum á hvert framleitt tonn af áli.