Um orku­skort, auð­lindir og endur­vinnslu

Síðustu daga hefur eitt og annað verið ritað á vefmiðla gegn yfirvofandi orkuskorti í landinu. Þar eru færð ýmis rök fyrir því að orkuskortur sé ástæðulaus áróður og Íslendingar séu „orkusóðar“

Raforka á Íslandi er auðlind. Sem slík er hún nýtt og skilar þjóðinni tekjum og skapar hagvöxt. Vegna þessarar auðlindar hefur orkusækinn iðnaður skotið rótum í landinu. Hér á landi starfa þrjú álver sem keyptu raforku fyrir rúmlega 68 milljarða á síðasta ári. Í kjölfar bestu afkomu sögunnar á árinu 2023 greiddi Landsvirkjun þjóðinni 30 milljarða í arð sl. vor. Þessar arðgreiðslur byggja að mestu leyti á raforkukaupum álveranna. Það jákvæðasta við veru álveranna á Íslandi er þó líklega að hér er framleitt ál með lægsta kolefnisspori í heimi.

Skerðingar á raforkusölu til álveranna, eins og áttu sér stað í upphafi þessa árs og munu eiga sér stað í upphafi þess næsta, rýra tekjur Landsvirkjunar og draga úr framleiðslugetu álveranna. Það svo aftur minnkar skattspor álveranna, kaup þeirra á vörum og þjónustu og bitnar svo í framhaldinu á arðgreiðslum Landsvirkjunar til þjóðarinnar.

Fyrsta álverið á Íslandi lagði grunninn að Landsvirkjun. Tryggir samningar um raforkusölu til langs tíma gerðu byggingu Búrfellsvirkjunar gerlega. Þessi fyrsta stórvirkjun á Íslandi lagði grunninn að orkuöryggi almennings í landinu.

Álverin á Íslandi starf í sátt við samfélagið. Þau greiða sína skatta og þau standa við sínar skyldur. Álverin á Íslandi eru traust bakland þjóðarinnar. Við álframleiðslu á Íslandi starfa um 2000 manns og annað eins í afleiddum störfum. Það er bakarí á Reyðarfirði vegna þess að 800 manns borða daglega í mötuneyti Fjarðaáls.

Orkunotkun Íslendinga er mest í Evrópu miðað við höfðatölu vegna þess að raforkan okkar er auðlind og ein af tekjulindum þjóðarinnar. Af Evrópuþjóðum vinna Svíar mestan málm miðað við höfðatölu, enda sænska foldin rík af málmum. Auðlindir þjóðanna eru mismunandi.

Það var alveg fyrirséð að ef heimsbyggðin ætlar að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til framtíðar krefst það ákveðinna fórna í uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa. Hvort sem um er að ræða uppistöðulón vegna vatnsorku, vindmyllugarða eða þess lands sem leggja verður undir sólarrafhlöður hefur það alltaf neikvæð umhverfisáhrif, hvar svo sem í heiminum þessi mannvirki munu rísa.

Það er hins vegar full ástæða til þess að taka undir með þeim sem tala fyrir því að við sem mannkyn drögum úr neyslu. Sannarlega geta Íslendingar gert miklu betur þegar kemur að því að neyta minna og sóa minna. Það þurfum við að gera ásamt því að endurvinna meira. Þá er rétt að benda á að álið er allra málma bestur þegar kemur að endurvinnslu.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samáls.

 

Greinin birtist á visi.is 26. september 2024

Sjá einnig