Um Samál

Samtök álframleiðenda á Íslandi (Samál) eru hagsmunasamtök álfyrirtækja á Íslandi, stofnuð þann 7. júlí 2010.

Markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og efla upplýsingastreymi og fræðslu um áliðnaðinn.

Aðilar að Samtökum álframleiðenda geta orðið allir íslenskir álframleiðendur. Félagsmenn þurfa jafnframt að vera aðilar að Samtökum iðnaðarins. Stofnfélagar Samáls eru þrjú álframleiðslufyrirtæki; Rio Tinto á Íslandi hf. (Isal), Norðurál ehf. og Alcoa Fjarðaál sf.

Stjórn Samáls skipa forstjórar álveranna þriggja á Íslandi, Gunnar Guðlaugsson frá Norðuráli, Rannveig Rist frá Isal og Hlöðver Hlöðversson frá Fjarðaáli sem jafnframt er formaður stjórnar.

Í varastjórn eru Bjarni Már Gylfason frá Isal, Sólveig Kr. Bergmann frá Norðuráli og Vigdís Diljá Óskarsdóttir frá Fjarðaáli.

Framkvæmdastjóri Samáls er Guðríður Eldey Arnardóttir, netfang gudridur@samal.is og farsími: 820-0766. Samál hefur aðsetur hjá Samtökum iðnaðarins í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 í Reykjavík.

Sjá einnig