Forsíða

Færslur sjást á forsíðu

Uppskeruhátíðir stóriðjuskólanna

Með hækkandi sól og hlýnandi veðri er það ekki bara lóan sem syngur sitt dirrindí, stoltir útskrifaðir nemendur úr stóriðjuskólum álveranna fagna líka námslokum. Íslensku álverin eru nefnilega ekki bara að framleiða ál, þau reka öll stóriðjuskóla og í vor útskrifuðu samtals þau 46 nemendur. Í stóriðjuskólum álveranna fær starfsfólk tækifæri til að bæta við […]

Uppskeruhátíðir stóriðjuskólanna Read More »

Stutt við tæknilausnir vegna stóriðjulosunar: tvö verkefni fá styrk

Tvö nýsköpunarverkefni hafa hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins. Styrkirnir eru veittir í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum en verkefnin snúa annars vegar að kolefnisgeymslu og greiningu á losun og hins

Stutt við tæknilausnir vegna stóriðjulosunar: tvö verkefni fá styrk Read More »

Norðurál hefur hafið endurræsingu þeirra 340 kerja duttu út þann 21. október sl.

Framleiðsla var stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls í október síðasta árs en var það í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins sem varð þriðjudaginn 21. október. Bilunin olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa

Norðurál hefur hafið endurræsingu þeirra 340 kerja duttu út þann 21. október sl. Read More »

Hvernig verður raforkuverð til í Evrópu?

Nokkuð hefur verið rætt um raforkuverð á Íslandi, bæði til almennings en ekki síður til atvinnulífs og þá aðallega stórnotenda.  Framan af var almennt talið að raforkuverð á Íslandi væri lágt í samanburði við önnur ríki og þá kannski sérstaklega Evrópu sem við berum okkur iðulega saman við. Eitt af því mikilvægasta sem Ísland hefur

Hvernig verður raforkuverð til í Evrópu? Read More »

Ál- og kísil­markaðir í hringiðu heims­mála

Við Íslendingar höfum borið gæfu til þess að fá hingað til lands stöndug og vel rekin fyrirtæki í orkusæknum iðnaði. Þessi fyrirtæki, sem eru stórnotendur rafmagns frá Landsvirkjun, þurfa um þessar mundir að glíma við sífellt flóknara viðskiptaumhverfi og æ harðari samkeppni í breyttum heimi. Það er ákveðið áhyggjuefni í ljósi þess að velsæld íslensku

Ál- og kísil­markaðir í hringiðu heims­mála Read More »

Það kostar að menga, þú sparar á að menga minna

Hið svokallaða ETS-kerfi er viðskiptakerfi með kolefniseiningar; verkfæri í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Kerfinu er m.a. ætlað að þrýsta á iðnað í Evrópu að draga eins og kostur er úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hvert tonn af koltvísýringsígildum sem losnar vegna þeirrar atvinnustarfsemi sem undir kerfið fellur, fær þannig verðmiða. Þannig geta einingarnar gengið kaupum og sölum,

Það kostar að menga, þú sparar á að menga minna Read More »

Eru ál­verin á Ís­landi út­lensk?

Álverin á Íslandi eru öll íslensk og hafa íslenska kennitölu. Hins vegar eru hluthafar þeirra erlendir eins og á við um mörg fyrirtæki á Íslandi. Flest stærri fyrirtæki landsins eru að hluta eða öllu leyti í eigu erlendra fjárfesta, hvort sem þau eiga sér íslenskan uppruna eða ekki. Má þar nefna stærstu hótelkeðjurnar á Íslandi,

Eru ál­verin á Ís­landi út­lensk? Read More »

Ál­fram­leiðsla á Ís­landi er ekki bara mikil­væg fyrir Ís­land

Græni sáttmáli Evrópusambandsins miðar að því að gera Evrópu að fyrstu loftslagshlutlausu heimsálfunni fyrir árið 2050. Sáttmálinn sameinar samkeppnishæfni og loftslagsmarkmið undir einni sameiginlegri vaxtarstefnu. Ál er á lista ESB yfir mikilvæga hrávöru til iðnaðar og þarf Evrópa að vera sem minnst háð innflutningi á áli. Þá þarf álframleiðsla í Evrópu að aukast samkvæmt markmiðum

Ál­fram­leiðsla á Ís­landi er ekki bara mikil­væg fyrir Ís­land Read More »

Ráðherra lofar stuðningi við álframleiðslu

„Við verðum að viðhalda samkeppnishæfu raforkuverði“ Álframleiðsla og samkeppnishæfni iðnaðarins á Íslandi voru í brennidepli á ársfundi Samáls sem haldinn var á Hilton Nordica þann 27. maí sl. Þar lýsti Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra yfir eindregnum stuðningi við íslenska álframleiðslu sem hluta af grænni framtíðarsýn fyrir hagkerfið. „Okkar sérstaða hérna á Íslandi

Ráðherra lofar stuðningi við álframleiðslu Read More »

Endurvinnsla áls er með því hæsta sem þekkist

Um 75% af öllu áli sem framleitt hefur verið í heiminum er enn í notkun, eins og fræðast má um á heimasíðu World Aluminium. Ál hefur þann einstaka kost að það má endurvinna aftur og aftur án þess það tapi upprunalegum eiginleikum sínum. Fyrir vikið fellur það undir skilgreiningu Metal Packaging Europe á varanlegu efni eða „permanent material“. Í

Endurvinnsla áls er með því hæsta sem þekkist Read More »