Hönnun og endurvinnsla í forgrunni á ársfundi Samáls

Samfélagsskýrslur álveranna - tilvalin lesning í rigningunni

Gott lesefni er gulls ígildi á blautum rigningardögum. Álverin hafa nú birt sínar samfélagsskýslur og eru þær allar áhugaverð sumarlesning.

Tímalaus klassík - innlegg í umræðu um mikilvægi orkusækins iðnaðar á Íslandi

„Orkufrekur iðnaður er ein þeirra leiða sem við Íslendingar höfum farið til skapa erlendar tekjur og atvinnu. Á síðustu öld brutumst við úr mikilli fátækt til hagsældar á grunni vaxandi útflutnings. Tekjur af fiskveiðum komu okkur áleiðis en síðan kom vaxandi orkuframleiðsla og ferðaþjónusta. Þessir þrír hornsteinar erlendra tekna skila hver um sig fjórðungi alls gjaldeyris Íslendinga“. – Sigurður S. Arnalds

Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu

Ein af þremur megin stoðum í tekjuöflun Íslands er álframleiðsla. Hinar tvær eru fiskveiðar og ferðamennska. Á árinu 2023 skiluðu íslensku álverin þjóðinni umtalsverðum tekjum. Þau vörðu 57,3 milljörðum í kaup á vörum og þjónustu. Þau greiddu 9,4 milljarða í opinber gjöld. Þau greiddu 25,3 milljarða í laun og launatengd gjöld. Um 2000 einstaklingar vinna hjá álverunum á Íslandi, ýmist sem launþegar eða verktakar. Þetta eru tölur sem skipta íslenskt hagkerfi verulegu máli.

Samþykktir Samtaka álframleiðenda á Íslandi

Hér má lesa samþykktir Samtaka álframleiðenda á Íslandi frá stofnfundinum 7. júlí árið 2010.

Er ál glópagull?

Álið hefur stundum verið kallað græni málmurinn. Eftirspurn eftir áli vex stöðugt enda er álið lykillinn að orkuskiptunum, eins léttur málmur og það er með frábæra eiginleika til endurvinnslu. En ekki síður skiptir það máli að álframleiðsla á Íslandi er með eitt lægsta kolefnisspor í heimi. Að því leytinu til er álið okkur heimsbyggðinni gulls ígildi

Hverju skila álfyrirtæki inn í íslenskt þjóðarbú?

Heildarútflutningur álvera á Íslandi árið 2023 nam 325 milljörðum. Það er um 17,4% af heildar útflutningsverðmæti þjóðarinnar í vöru og þjónustu.

Ársfundur Samáls 2024

Ársfundur Samáls, samtaka álframleiðenda verður haldinn fimmtudaginn 30. maí 2024 í Norðurljósum Hörpu kl. 8:30 – 10:00 Boðið er upp á morgunverð frá 8:15

Rio Tinto styrkir Rauða krossinn um 208 milljónir vegna jarðhræringa við Grindavík

Rio Tinto hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi styrk að upphæð 208 milljónir króna, eða jafnvirði 1,5 milljónum dollara, til stuðnings samfélagsins sem hefur orðið fyrir áhrifum jarðskjálfta og eldgosa í og við Grindavík. Um er að ræða hæsta styrk sem fyrirtæki hefur veitt Rauða krossinum á Íslandi til verkefna innanlands.

Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli

Álið er stundum kallað græni málmurinn. Það er endingagott, auð endurvinnanlegt og minnkar orkunotkun í samgöngum vegna þess hversu létt það er. Þannig leikur álið lykilhlutverk í orkuskiptunum. ....þetta er allt sami lofthjúpurinn þar sem hnattstaða skiptir ekki máli þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á heims vísu.

Örsaga um ál og auðlindir

Raforka Íslendinga er að sönnu þjóðarauðlind. Í umræðunni um orkuskort gefa einhverjir þeirri hugmynd undir fótinn að stórkaupendum raforku sé ofaukið og á þeirra kostnað væri hægt að nýta orkuna í orkuskiptin og styrkja ferðaþjónustu.

Pétur Blöndal kveður

Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls sat sinn síðasta stjórnarfund þann 21. mars sl. en hann var ráðinn til samtakanna árið 2013.  Pétur hverfur nú til annarra starfa,

Menntadagur atvinnulífsins 2024 - Göngum í takt

Menntadagur atvinnulífsins er árlegur viðburður þar sem menntamál eru í brennidepli. Fundurinn er haldinn í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 09:00 - 10:30.

Guð­ríður Eld­ey nýr fram­kvæmda­stjóri Samáls

Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðanda á Íslandi. Guðríður mun taka við starfinu af Pétri Blöndal, en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2013.

Séríslenskar byrðar á atvinnulífinu

Það er þjóðþrifamál að kafa ofan í svokallaða gullhúðun í regluverki EES eins og utanríkisráðherra hefur boðað. Pétur Blöndal skrifar í Morgunblaðið um séríslenskar byrðar á atvinnulífinu.

Íþyngjandi regluverk á færibandi yfirskrift framleiðsluþings SI í Hörpu 25. janúar

Íþyngjandi regluverk á færibandi er yfirskrift Framleiðsluþings SI sem fer fram í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 25. janúar kl. 15.00-16.30.

Laufey hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin

Lauf­ey Lín Jóns­dótt­ir, söng­kona og laga­höf­und­ur, hlýt­ur Íslensku bjart­sýn­is­verðlaun­in 2023 sem af­hent voru á Kjar­val­stöðum í dag. For­seti Íslands, hr. Guðni Th. Jó­hann­es­son, af­henti verðlaun­in, sem eru áletraður grip­ur úr áli frá ISAL í Straums­vík og ein og hálf millj­ón króna í verðlauna­fé.

Horfur til langs tíma góðar

Álmarkaðir hafa ekki farið varhluta af því óvissuástandi sem ríkir á heimsvísu, hagvöxtur hefur skroppið saman á meginlandi Evrópu og dregið hefur úr eftirspurn. Pétur Blöndal ræðir stöðu álmarkaðarins í Morgunblaðinu.

Hvert stefnir áliðnaðurinn í loftslagsmálum? Umræðuþáttur í Sjónvarpi atvinnulífsins.

Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, ræðir um loftslagsmál við Sigríði Guðmundsdóttur sérfræðing Isal í kolefnisjöfnun og Guðlaug­ Bjarka Lúðvíks­son fram­kvæmda­stjóra ör­ygg­is-, um­hverf­is- og um­bóta­sviðs hjá Norðuráli.

Ræst hefur úr framtíðarsýn Álklasans

Hátt í 40 fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í að móta framtíðarsýn nýstofnaðs Álklasa í Borgarnesi vorið 2014. Pétur Blöndal veltir fyrir sér hvernig til hefur tekist.

ISAL og Samtökin ´78 undirrita samstarfsyfirlýsingu

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, og Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um að gera álver ISAL í Straumsvík að vottuðum hinseginvænum vinnustað.

Álverin þrjú hafa tekið stórt stökk fram á við í áframvinnslu

Stöðug framþróun er í framleiðsluferli áls hér á landi. Á síðasta ári keyptu íslensku álverin vörur og þjónustu af hundruðum fyrirtækja fyrir rúma 60 milljarða. Þetta kemur fram í grein Péturs Blöndals í Morgunblaðinu.

Allir sitji við sama borð

Mikið yfirflæði er af íþyngjandi reglugerðum frá Brussel þessi misserin. Svo virðist sem hver stofnunin togi í sína áttina og vart þarf að koma á óvart að í slíku reiptogi verði mönnum lítt ágengt. Pétur Blöndal skrifar í Morgunblaðið.

Hvernig geta álver spornað við losun gróðurhúsalofttegunda?

Í framleiðslu áls verður almennt mest losun vegna orkuvinnslu. Á Íslandi byggist raforkuframleiðsla nær einvörðungu á endurnýjanlegum orkugjöfum. Þegar endurnýjanleg orka er notuð til álframleiðslu er losunin margfalt minni en þar sem orkan er sótt í jarðefnaeldsneyti á borð við kol eða gas, enda er það orkuvinnslan sem losar mest við álframleiðsluna. Umhverfisvöktun með álverum á Íslandi er með umfangsmestu umhverfisrannsóknum á Íslandi og leggja öll álverin ríka áherslu á að starfsemin sé í sátt við umhverfið, með lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna.

Atvinnulífið afhendir ráðherra 332 tillögur

Ellefu atvinnugreinar hafa nú afhent Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra 332 tillögur að aðgerðum sem stuðla eiga að auknum samdrætti í losun atvinnugreina.

Nýsköpun, sjálfbærni og loftslagsmál á ársfundi Samáls

„Hring eftir hring eftir hring,“ var yfirskrift ársfundar Samáls sem haldinn var í Norðurljósum Hörpu á fimmtudaginn 25. maí. Áhersla var lögð á nýsköpun, sjálfbærni og loftslagsmál.

Hafa álver á Íslandi stefnu í samfélagsábyrgð?

Öll álverin hafa stefnu í samfélagsábyrgð, þar sem horft er til hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og stefnt að því að ná jafnvægi milli umhverfis, efnahags og samfélagslegra þátta til lengri tíma litið. Á hverju ári veita þau háa styrki til samfélagsmála og námu styrkirnir alls 208 milljónum árið 2015.

Hvaða áhrif hafa álver á hagsveiflur á Íslandi?

Framleiðsla áls hófst á Íslandi árið 1969. Síðan þá hefur hlutur áls í vöruútflutningi margfaldast á meðan hlutur sjávarútvegs hefur helmingast. Áliðnaðurinn gegnir lykilhlutverki í vöruútflutningi og hefur þannig breikkað og styrkt grundvöll íslensks efnahagslífs. Hann gerir útflutning fjölbreyttari, sem aftur dregur úr sveiflum í efnahagslífinu og stuðlar að að stöðugra gengi.

Hversu mikið kaupa álverin af vörum og þjónustu?

Álver á Íslandi keyptu vörur og þjónustu fyrir um 61 milljarð árið 2022 og er þá raforka undanskilin. Á síðustu árum hafa þessi viðskipti að jafnaði numið um 22 til 40 milljörðum á ári. Það skapar hundruðum íslenskra fyrirtækja rekstrargrundvöll. Álver þurfa stöðugar fjárfestingar til að viðhalda samkeppnishæfni sinni og fjárfestu álverin fyrir yfir 277 milljarða á árunum 2011 til 2021.

Skilar orkusala til álvera arðsemi?

Álver á Íslandi kaupa um 66% allrar raforku á Íslandi. Alls greiddu álverin um 85 milljarða fyrir orkuna árið 2022 og er þá miðað við meðalverð Landsvirkjunar til stóriðju. Uppbygging raforkukerfis á Íslandi hefur haldist í hendur við uppbyggingu í áliðnaði. Íslendingar eiga nú eitt öflugasta og hagkvæmasta raforkukerfi í heiminum, leggja sitt af mörkum í loftslagsmálum með endurnýjanlegri orku og heimilin uppskera eitt lægsta verð sem þekkist á byggðu bóli. Í samræmi við orkustefnu er Ísland vel í stakk búið að njóta þjóðhagslegs ávinnings, stuðla að verðmætasköpun í atvinnulífinu og bjóða samkeppnishæft orkuverð.

Hversu mikið er endurunnið af áli?

Það er staðreynd að ál er meðal þeirra málma sem mest er endurunnið. Yfir 75% af öllu áli sem framleitt hefur verið í heiminum er enn í notkun. Hér má fræðast um endurvinnslueiginleika áls.

Í hvað fer ál sem framleitt er á Íslandi?

Ál framleitt á Íslandi er flutt til fjölmargra landa, einkum í Evrópu. Það er til margra hluta nytsamlegt; íslenskt ál er notað í bifreiðar, til að mynda Audi og Mercedes Benz, felgur, álpappír, lyfjaumbúðir og húsaklæðningar – svo fátt eitt sé nefnt. Hér á landi eru fullunnir álvírar fyrir háspennustrengi. Þá er álið framleitt á Grundartanga sem Málmsteypan á Hellu notar í sína framleiðslu, svo sem rómaðar pönnukökupönnur og fjölbreyttar afurðir fyrir sjávarútveg, orkuiðnað og ferðaþjónustu.

Bein útsending frá ársfundi Samáls 2023

Bein útsending.

Samfélagsskýrsla Alcoa Fjarðaáls fyrir árið 2022 komin út

Alcoa Fjarðaál flutti út vörur fyrir 143 milljarða í fyrra og þar af urðu 43 milljarðar eða 30% eftir í landinu. Þetta kemur fram í nýútkominni samfélagsskýrslu Alcoa Fjarðaáls.

Viðurkenningar til háskólanema veittar á Nýsköpunarmóti Álklasans

Hvatningarviðurkenningar voru veittar á vel sóttu Nýsköpunarmóti Álklasans, sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík á þriðjudag.

Breytum áskorunum í tækifæri

Óhætt er að segja að áskoranirnar séu krefjandi og áhugaverðar sem orkusækinn iðnaður stendur frammi fyrir og Álklasinn er farvegur fyrir samstarf á því sviði, að því er fram kemur í grein Dags Inga Ólafssonar, klasastjóra Álklasans, í Morgunblaðinu.

Loftslagsmál og sjálfbærni á Nýsköpunarmóti Álklasans 28. mars í Háskólanum í Reykjavík

Loftslagsmál og sjálfbærni verða í öndvegi á Nýsköpunarmóti Álklasans sem haldið verður þriðjudaginn 28. mars í Háskólanum í Reykjavík.

Alúfónn í verki Áskels Mássonar á Myrkum músíkdögum

Verkið Capriccio eftir Áskel Másson er eitt af fimm glæsilegum og gagnólíkum verkum á efnisskrá Myrkra músíkdaga í kvöld. Í verkinu hljómar óvenjulegt hljóðfæri, alúfónn, en Samál styrkti Sinfóníuhljómsveit Íslands til kaupa á þessu fallega hljóðfæri úr áli í vor sem leið.

Uppbygging kolefnismóttöku- og förgunarstöðvar í Straumsvík

Rio Tinto á Íslandi, Carbfix, Coda Terminal, Hafnarfjarðarbær hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu kolefnismóttöku- og förgunarstöðvar í Straumsvík.

Sigríður Soffía Níelsdóttir fær Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 á Bessastöðum

Sigríður Soffía Níelsdóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Með frekari vöruþróun eykst verðmætið

Umfang áliðnaðar fer stöðugt vaxandi sem og virðisaukinn sem myndast hér á landi. Þetta er inntakið í grein sem Pétur Blöndal skrifar í Viðskiptablaðið.

Ekki tjaldað til einnar nætur í íslenskum áliðnaði

Stundum er gengið að því sem gefnu að íslensk orkufyrirtæki skili hagnaði. Ef litið er til sögunnar, er það hinsvegar ekki sjálfgefið. Pétur Blöndal skrifar pistil í Innherja á Vísi.

Ekkert sjálfsagt við sjálfstæði í orkumálum

Mikilvægi öflugs og fjölbreytts atvinnulífs verður aldrei skýrara en þegar áföll dynja yfir. Pétur Blöndal skrifar um sjálfstæði í orkumálum og uppbyggingu orkukerfisins.

Rio Tinto á Íslandi hlýtur Jafnréttissprotann 2022

Rio Tinto á Íslandi hlýtur Jafnréttissprotann 2022. „Við tökum stolt á móti þessari viðurkenningu,“ sagði Rannveig Rist forstjóri þegar hún tók á móti viðurkenningunni.

Rio Tinto á Íslandi hlýtur Jafnréttissprotann 2022

Rio Tinto á Íslandi hlýtur Jafnréttissprotann 2022. „Við tökum stolt á móti þessari viðurkenningu,“ sagði Rannveig Rist forstjóri þegar hún tók á móti viðurkenningunni.

Norðurál valið umhverfisfyrirtæki ársins

Norðurál var valið umhverfisfyrirtæki ársins á umhverfisdegi atvinnulífsins. Kolefnisspor Norðuráls er með því lægsta sem gerist í heiminum.

Fagna 15 ára afmæli risastórs hornsteins í atvinnulífi Austurlands

Alcoa Fjarðaál fagnaði fimmtán ára afmæli í dag með opnu húsi og fjölskylduskemmtun í álverinu. Einar Þorsteinsson forstjóri segir fyrirtækið risastóran hornstein í atvinnulífi á Austurlandi.

Græn vegferð í áliðnaði

„Græn vegferð í áliðnaði“ var yfirskrift ársfundar Samáls 2022 sem haldinn var í Kaldalóni í Hörpu að morgni 31. maí. Fjallað var um stöðu og horfur í áliðnaði og leiðina að kolefnishlutleysi fyrir íslensk álver.

Hugsað út fyrir kassann

Óhætt er að segja að metafkoma álvera á Íslandi séu mikil innspýting fyrir íslenskt efnahagslíf. Pétur Blöndal skrifar grein í Viðskiptablaðið.

Spáir besta ári frá upphafi

Þetta ár verður að óbreyttu það besta í sögu áliðnaðar á Íslandi enda ekki út­lit fyr­ir annað en að ál­verð verði áfram sögu­lega hátt, að sögn Einars Þorsteinsson forstjóra Alcoa Fjarðaáls og stjórnarformanns Samáls.

Beint streymi frá ársfundi

Útflutningsverðmæti álvera námu tæpum 300 milljörðum árið 2021 og skiluðu þau metafkomu í fyrra. Þetta er á meðal þess sem fram kemur á ársfundi Samáls í dag, en yfirskrift fundarins er „Græn vegferð í áliðnaði“. Hér er streymi af fundinum, sem hefst klukkan 8:30.